Mitt líf

06.06.2009 17:59:57 / asta_minney

Hætt störfum!

Jæja þá hef ég ákveðið að hætta með þessa síðu...hef mikið verið að hugsa um hvernig síðu ég ætti að fá mér fyrir krílið og varð 123.is fyrir valinu. Er semsagt komin með fjölskyldusíðu, verður samt svona aðalega fyrir litla krílið en nýja síðan er astaminney.123.is. Síðan er læst en ekki hika við að byðja mig um lykilorðið:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.03.2009 12:06:52 / asta_minney

Nei hættiðið nú!

Þetta gengur ekki lengur...ég er fyrir árás á mínu eigin heimili! Haldiði ekki að það séu komin 2 kattarkvikindi á svalirnar mínar núna og þeir neita að fara!:^) Er ekki að nenna þessu...er að spá að kaupa mér eitthvað eitur eða eitthvað á svalirnar...eða eitthvað verð ég að gera til að reyna að halda þeim í burtu:$ Það er svo geggjað veður úti núna og ég er alveg að kafna úr hita hérna inní stofu en get ekkert opnað út...ég er fangi á mínu eigin heimili! Afhverju getur fólk ekki bara haft þessi dýr nni hjá sér eða setja band á kettina þegar þeir eru úti! Meiga þeir bara ganga lausir? Er ekki sömu reglur um ketti og hunda? Ég meina það er alveg fullt af fólki með ofnæmi fyrir köttum og því meiri ástæða fyrir að hafa þá ekki lausa vafrandi í kringum íbúðir hjá fólki að leita af opnum glugga til að smeigja sér inn um!

En nóg um mín vandamál með kettina! Ætla að fara að gera eitthvað í þessu geggjaða veðri8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.03.2009 16:30:05 / asta_minney

Kattarkvikindi!

Ég var nú ekki mjög ánægð áðan þegar ég var að máta gardínurnar mínar í stofugluggann og tók allt í einu eftir því að það var köttur á svölunum mínum að glápa á mig...svo labbaði hann nær og horfði á mig mjög auðmjúklega í von um að ég myndi hleypa honum inn! Ég hélt nú ekki! Ég get ekki sagt annað en að ég hata ketti og tala nú ekki um að ég er með slæmt ofnæmi fyrir þessum dýrum! Já þetta eyðilagði alveg fyrir mér daginn þar sem ég sé ekki framá að geta nokkru sinni opnað gluggana sem eru út á svalir, hvað þá að opna svalahurðina! Ohhh þoli þessi kvikindi ekki...þetta er einmitt ástæðan fyrir því að ég vil ekki búa á jarðhæð í blokk, en nei nei ég er ekki einu sinni laus við þessa ketti uppá annari hæð! Þussum svei!


Annars er allt gott að frétta fyrir utan þetta...og það er alveg geggjað veður...verst að ég get ekki opnað út!:s


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.03.2009 22:35:07 / asta_minney

Jahááá!

Það er nú liðið ansi langt síðan seinast og kannski kominn tími á smá blogg! Ansi margt búið að gerast en ég nenni ekki að fara eitthvað náið út í það...allavega búið að skella á eitt stykki kreppa:s. En það er bara allt gott að frétta hérna úr Hafnarfirðinum fagra:d við höfum það bara gott hérna í litlu kósý íbúðinni okkar;) Janúar og febrúar búnir og bara komin mars sem þýðir að sumrið er ekki langt undan...get ekki beðið:haha: Ætla að hafa það súper gott í sumar...fæ svo gott sumarfrí8) En nú er bara að bíða eftir páskafríinu og ætlunin er að fara vestur í sæluna hjá mömmu og pabba um páskana og kíkja á aldrei fór ég suður:d Hlakka ekkert smá til;)
Jæja ætla að láta þetta duga í bili...þetta er allavega mikil framför;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.09.2008 22:32:16 / asta_minney

Á TALI...

...og búin að vera það í allt sumar!:s
Hef bara ekkert nennt að halda þessu bloggi uppi í sumar og er svona enn a hugsa hvort ég nenni að vera að standa í þessu...hendi kannski inn einu og einu bloggi svona þegar ég nenni sem verður örugglega mjög sjaldan.
En sumarið mitt er búið að vera draumur einn og kannski ég bara bloggi um það næst svona svo ég hafi eitthvað að segja, þarf líka að fara henda inn myndum frá sumrinu:)

En semsagt mín er á lífi...alveg sprelllifandi, svona ef þið vilduð vita;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.05.2008 19:45:15 / asta_minney

Nú verður sko grillað í sumar!


Mín var að fjárfesta í sona grilli, mitt er reyndar stærra, þannig nú verður sko grillað í sumar ummmmm8) Besta í heimi er grillaðar kartöflur og svarthamars læri með piparsósu ummm ummm ummmm, elska grillmat:d Svo er þetta líka ferðagrill, bara hægt að pakka því saman og taka með í útileguna þannig það á eftir að fylgja okkur hvert sem við förum í sumar:d

Annars er bara allt gott að frétta, vorum að koma að austan úr sólinni, búið að vera steik í allan dag enda er ég orðin pínu brennd í framan8) svo á bara að vera rigning á morgun, ömurlegt:(

Jæja það eru ekki nema 10 dagar á Danmerkurferðina, orðin ansi spennt, verður gaman að komast í frí, kem svo heim í 3 daga svo bara brunað vestur, bara nice:d




» 3 hafa sagt sína skoðun

17.05.2008 15:04:59 / asta_minney

Hérna þá!

Jæja þá kemur loksins smá blogg! Sumir eitthvað að kvarta yfir bloggleysi!

En já það var alveg frábært fyrir vestan hjá mömmu og pabba. Var á fullu að mála allan tíma, vildi endilega breyta til og málaði allt hvítt:haha: Það kom bara vel út;) Annars gerði ég nú lítið annað en hafa það gott í sveitinni:d Dugleg að fara í pottinn og sona. Get nú ekki sagt að ég hafi verið dugleg að fara í heimsóknir og verðið þið bara að fyrirgefa það, ég bara nennti ekki að gera neitt, var bara heima allan tímann;) Þetta var líka bara svo stuttur tími og vildi ég bara nýta hann vel heima.
Ég fékk svaka góðann mat á afmælisdaginn, svínahamborgarahryggur ummmmmm;) og hafði það bara mjög fínt á afmælisdaginn og vil ég þakka fyrir allar yndislegu gjafirnar og allar kveðjurnar sem ég fékk:haha:

Svo var bara flogið í bæinn á mánudaginn og bara búin að vera vinna síðan þá.

Verð að þjóta...blogga meira seinna;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 19:06:13 / asta_minney

Á LEIÐINNI VESTUR:)

Já þá er mín búin að panta sér flug vestur:haha: Kem fimmtudagsmorgun og verð frammá mánudag;) Ég ákvað bara að vera góð við sjálfa mig og gefa mér þetta í afmælisgjöf;) Þannig afmælisdeginum verður fagnað hjá mömmu og pabba:haha: og ég er búin að panta að fá fisk alla daga...eða allavega soðna ýsu með kartöflum, fiskistöppu og fisk í raspi ummmm ummm umm;) Ekki mikið borðað af fiski á þessu heimili þar sem Óli er með ofnæmi þannig um að gera að nýta tækifærið þar sem hann kemst ekki með vestur, hann er í prófum á þessum tíma. En svo er mamma búin að kaupa hamborgarahrygg sem hun ætlar að hafa á afmælinu mínu...þannig það verður bara veislumatur hjá minni;)

Fæ svo að sjá lömbin og sona...ohhh elska vorið:d En mér finnst ekki vera að koma sumar fyrren ég er búin að fá að fara aðeins í fjárhúsin;) Vona bara að það verði gott veður.

Annars er nú lítið að frétta, geri ekki mikið annað en vinna, gera neglur, elda og sofa;)
Gulla kíkti í neglur til mín í seinustu viku...gaman að fá hana loksins í heimsókn:d

Jæja búin að bulla nóg í bili;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.04.2008 07:22:42 / asta_minney

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN:)

Hún á afmæli í dag
hún á afmæli í dag
hún á afmæli hún Sigga
hún á afmæli í dag!!!!
Hipp hipp HÚRRA!!!

Já hún Sigga dúllan mín á afmæli í dag og er hvorki meira né minna en 25 ára skvísan:haha: Bara merkisafmæli, vildi ég væri fyrir vestan svo ég gæti kysst þig og knúsað en það verður bara að bíða þar til í næstu viku;) Átt það inni hjá mér:haha: Leitt að hafa ekki getað komið í surprice afmælið þitt, hefði svo viljað dajmma með þér en það verður bara að bíða betri tíma;) Vona að þú eigir ánægjulegan dag dúllan mín:d

Læt hér fylgja með nokkrar myndir af okkur frænkunum á góðum stundum;)



Ég, Sigga og Tóta


Annar í Jólum djamm 2006

Annar í Jólum 2007



TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ELSKAN MÍN:haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.04.2008 23:14:27 / asta_minney

VEI VEI VEIIIIIIIIII!

Netið er loksins komið í lag hjá mér...ég var alveg vængbrotin yfir að komast ekki á netið:s

Annars er nú lítið að frétta, búið að vera frekar mikið hjá minni að gera núna síðustu daga, hlakka bara til að vera í fríi á fimmtudaginn, svo er nóg að gera um helgina;)

En váá hvað er málið með þessa sinubruna alltaf hreint, alltaf þessi helvítis brunalykt, húsið svoleiðis angar...vona bara að maður eigi ekki á hættu að brenna inni:s nei djók:d

Jæja nenni ekki að bulla meira8)





» 1 hafa sagt sína skoðun

21.04.2008 22:09:45 / asta_minney

VESEN OG AFTUR VESEN!

Það er eitthvað vesen í gangi með netið hjá mér...kemst ekki inná netið í minni tölvu þannig ef einhver þarf að ná sambandi við mig þá bara hringja.


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 21:36:22 / asta_minney

Til hamingju með daginn!

Já hann Arthúr bróðir á afmæli í dag og er orðinn 14 ára gamall drengurinn! Til hamingju með daginn brói:haha::haha: Ohhh sjáiði hvað hann er saklaus þetta litla skinn:haha: Þessi er tekin á kanarý 20068)

Nenni ekki að blogga neitt í þetta skipti en læt hér fylgja með nokkrar myndir af afmælisbarninu;)


Jólin 2006

Karen og Arthúr

Kanarý 2007

Arthúr og Aðalsteinn - Kanarý 2007

Jólin 2007
Njóttu dagsins brói og farðu nú að blogga fyrir systu;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.04.2008 23:10:29 / asta_minney

PIRRINGUR!!!!!

Ohhh er orðin ansi pirruð á þessu drasli...það er bara ekkert að virka nuna! Er búin að reyna að setja inn nýja myndir, blogga og bara reyna gera síðuna flottari og það bara virkar ekkert sem ég ætla að gera! PIRRINGUR PIRRINGUR!!!


Nenni ekki að tala meira um það! Það er nú lítið í fréttum hjá minni núna, ekki mikið búið að gerast. Fórum austur á föstudaginn og vorum yfir alla helgina, svo þegar við vöknuðum á sunnudaginn þá var bara allt á kaf í snjó og þá meina ég á kafi...ekkert smá sem hafði sjóað um nóttina þar og ömurlegt veður, var reyndar skárra í bænum en það var fínt veður í dag og spáir bara vel áfram ÞANNIG vonandi að vorið sé nú loks að koma:d


Já svo eru ekki nema 51 dagur þar til við förum til DK eða eiginlega 50 þar sem þessi dagur er senn á enda:d Hlakka ekkert smá til...þá ætla ég sko að missa mig í fatakaupum þar sem ég hef ekki keypt mér föt í heila öld, hef bara ekki týmt því, allt svo helvíti dýrt! Keypti mér samt sokka í dag og um leið og ég labbaði út úr búðinni þá var ég komin með samviskubit, lá við að ég snéri við um leið og bæði um endurgreiðslu:s En hætti við það þar sem það er nú eiginlega nauðsynlegt að vera allavega ekki að spóka sig um á götóttum sokkum;)

Þakka fyrir í bili og hafið það sem best;)




» 0 hafa sagt sína skoðun

11.04.2008 18:13:39 / asta_minney

Ekkert að standa mig!!!

Já það má nú segja það að ég er ekkert að standa mig í blogginu þessa dagana, hef bara ekkert nennt að blogga...ætlaði samt að blogga í gær en þá gat ég ekki sett inn myndir og eitthvað þannig ég nennti ekki að blogga.


Núna er ég bara að bíða eftir að gólfið þorni hjá mér svo ég komist í sturtu, en ég var að enda við að þrífa íbúðina og er svo að fara austur yfir helgina...þannig ákvað bara að henda inn nokkrum línum meðan ég bíð eftir að komast inná bað;) En ég kem með betra blogg eftir helgi8)



» 1 hafa sagt sína skoðun

30.03.2008 12:58:23 / asta_minney

Sól og blíða

Jæja þá er bara komin sunnudagur og helgin að verða búin. Þetta er nu samt búin að vera ansi ljúf helgi, mamma, pabbi og Arthúr komu í bæinn á fimmtudaginn og voru að leggja í hann vestur bara núna áðan. Buðum þeim, Karen og Teit í mat á föstudaginn, það var bara gaman, svo gisti Arthúr hérna hjá okkur þá nótt og vorum við systkynin með video og nammikvöld og höfðum það kósý. Svo á Laugardeginum var farið í bæinn að finna fermingarfötin á dengsa, eða það er að segja skyrtu, bindi og skó, en hann verður í jakkafötum af afa sem eru eld gömul og geggjað flott, þau eru núna farið að ganga á milli strákanna í fjölskyldunni:d Fórum svo í fermingu hjá henni Birnu frænku, rosa flott veisla.

Annars er nú lítið að frétta nema að við fórum vestur um páskana, geggjað stuð. Það var kíkt í partý hjá Siggu föstudagskvöldið og á ball í Hnífsdal í kjölfarið, rosa stuð. Kíktum á aldrei fór ég suður á laugardeginum, aftur í partý hjá Siggu á sunnudeginum og á SSSól ballið sem var bara snilld:haha: Svo var bara borðað fullt af góðum mat hjá mömmu, slappað vel af, farið nokkrum sinnum í pottinn, á sexhjólið og eitthvað smá á bretti, var samt mest á sexhjólinu að draga strákana á bretti. Sem sagt ljúfir páskar og mjög gaman að hitta allt fólkið:d Verð nú samt að viðurkenna að ég var alltof slöpp með myndavélina þessa páskana en læt nokkrar myndir fylgja:




Geggjað veður!

Partý hjá Siggu föstudagskvöldið, Jónþór, Eva, Karen og ég

Óli alltaf góður í pósinu:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Heimsóknir
Í dag:  10  Alls: 43309
Dagsetning
23. febrúar 2012
Klukkan